Áliðnaðurinn mikilvægur hagkerfinu 8. mars 2012 04:30 Anna Guðrún Ragnarsdóttir, hagfræðingur, vann einkum að gerð skýrslunnar en þeir Ragnar Árnason, prófessor, og Sveinn Agnarsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar lögðu einnig sitt af mörkum. Skýrslan var unnin fyrir Samál, samtök álframleiðenda. Fréttablaðið/Vilhelm
Hagfræðistofnun metur framlag áliðnaðarins á Íslandi 6 til 6,8 prósent af landsframleiðslu. Í greininni starfa um 2.000 manns en að auki áætlar stofnunin að um 2.800 manns starfi í tengdum greinum sem þjónusta áliðnaðinn. Áliðnaðurinn stóð á árunum 2008 til 2010 beint eða óbeint að baki 6 til 6,8% af landsframleiðslu Íslands. Þetta er niðurstaða Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem hefur rannsakað framlag áliðnaðarins til þjóðarbúsins fyrir Samál, samtök álframleiðenda. Til samanburðar hefur beint og óbeint framlag sjávarútvegs til landsframleiðslunnar verið áætlað um 17,5%. Þrjú stór álver eru starfrækt á Íslandi: Í Straumsvík, á Grundartanga og í Reyðarfirði. Samanlagt framleiða þau rúm 800 þúsund tonn af áli á ári sem jafngildir um tveimur prósentum af heimsframleiðslu áls. Í tengslum við starfsemi álveranna starfa um 2.000 manns. Í skýrslunni kemur fram að áliðnaðurinn verslar við hundruð íslenskra fyrirtækja sem mörg hver eiga allt sitt undir greininni. Áætlar stofnunin því að um 2.800 manns starfi í tengdum greinum við að þjónusta álverin. Það óbeina framlag til landsframleiðslunnar sem þannig skapast er talið vera á bilinu 40 til 51 milljarður króna af þeim 85 til 96 milljörðum sem áliðnaðurinn er talinn skila. Greining Hagfræðistofnunar byggir á þeirri niðurstöðu að áliðnaðurinn myndi ásamt orkuframleiðsluiðnaðinum á Íslandi svokallaðan grunnatvinnuveg. Það er atvinnuveg sem staðið getur án stuðnings annarra atvinnuvega en slíkir atvinnuvegir skapast oft í kringum vinnslu náttúruauðlinda. Segir í skýrslu stofnunarinnar að atvinnuvegir í hagkerfi myndi vef viðskipta og tengist með fjölmörgum hætti. Flestir atvinnuvegir séu öðrum háðir og geti ekki staðið einir og óstuddir. Því geti reynst erfitt að afmarka framlag hvers og eins. Það sama gildi hins vegar ekki um grunnatvinnuvegi sem skapist oft í kringum tilveru náttúruauðlinda. Loks kemur fram í skýrslunni að útflutningur á áli hafi á undanförnum árum numið að meðaltali tæpum 40 prósentum af vöruútflutningi, er það svipað hlutfall og sjávarútvegurinn státar af. Hefur vöruskiptajöfnuður greinarinnar verið tugir milljarða króna síðustu ár, lægst verið 35,5 milljarðar árið 2004 en hæst verið tæplega 130 milljarðar. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira