Fótbolti

Mourinho: Beckham ætti að vera að spila á Ólympíuleikunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho.
Jose Mourinho. Mynd/Nordic Photos/Getty
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, skilur ekkert í Stuart Pearce, þjálfara breska landsliðsins, að hafa ekki valið David Beckham í Ólympíuliðið.

„Ég skil þetta ekki. Ég þekki þetta aðeins því ég kom aðeins að þessu og að mínu mati er það Beckham að þakka að Ólympíuleikarnir eru í London. Sebastian Coe og aðrir eiga mikinn þátt í þessu en Beckham var mikilvægasta andlitið í baráttunni," sagði Jose Mourinho og bætti við:

„Ég skil bara ekki af hverju Beckham er ekki að spila á Ólympíuleikunum. Í 18 manna hóp þarftu bæði að hafa menn sem bera af í fótboltahæfileikum sem og í mannlegum hæfileikum," sagði Mourinho.

„Að mínu mati er Beckham einn besti fótboltamaðurinn til að bera áfram hugsjón Pierre de Coubertin. Ég er mjög leiður yfir því að hann sé ekki að keppa á leikunum," sagði Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×