Erlent

Fundu stökkbreytt gen sem stóreykur líkurnar á Alzheimer

Tvö teymi alþjóðlegra vísindamanna hafa komist að því að stökkbreytt gen valdi stóraukinni áhættu á því að fólk fái algengustu tegundina af Alzheimer sjúkdóminum.

Fjallað er um málið í frétt á Reuters. Þar segir að vísindamennirnir sem hér um ræður vinni hjá deCode annarsvegar og John Hardy háskólanum í London hinsvegar.

Reuters ræðir við dr. Kára Stefánsson um málið en hann segir að þetta stökkbreytta gen fjórfaldi líkurnar á því að viðkomandi fái Alzheimer.

Fram kemur að þrátt fyrir miklar rannsóknir og tilraunir hafi lyfjafyrirtækjum enn ekki tekist að finna lyf sem geti læknað eða haldið Alzheimer sjúkdóminum í skefjum,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×