Erlent

Will Ferrell ætlar að borða rusl ef fólk kýs Obama

Leikarinn Will Ferrell segist tilbúinn að gera hvað sem er til að fólk kjósi Barack Obama, í forsetakosningunum sem fara fram í Bandaríkjunum á morgun. Í bráðskemmtilegu myndbandi, sem hann hefur gefið út og segist meðal annars vera stofnandi Facebook, segist hann vera tilbúinn að elda, húðflúra, dansa og borða hár og rusl fyrir fólk.

Myndbandið hefur fengið gríðarlega mikla athygli vestanhafs og hafa yfir 850 þúsund manns horft á það.

Horfa má á myndbandið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×