Erlent

Bensín skammtað í New York

Bensín verður skammtað í New York frá og með deginum í dag. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, tilkynnti þetta í gærkvöldi.

Skömmtunin verður með því fyrirkomulagi að bílar með númer sem enda á oddatölu fá að kaupa bensín á oddatöludögum og öfugt. Bloomberg vildi ekki segja hve lengi þessi bensínskömmtun myndi vara.

Ofsaveðrið Sandy olli miklum skemmdum í borginni og sem stendur hefur aðeins tekist að opna um fjórðung þeirra beinsínstöðva sem eru í New York.

Að öðru leyti er borgarlífið smátt og smátt að komast í eðlilegt horf og nefna má að flugsamgöngur eru nú með eðlilegum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×