Stærsta hópslysaæfing sem haldin hefur verið Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 6. október 2012 19:30
Stærsta hópslysaæfing sem haldin hefur verið hér á landi fór fram í Reykjavík í dag. Yfir sex hundruð manns frá öllum viðbragðsaðilum komu að æfingunni þar sem flugvél með hundrað farþega átti að hafa brotlent á Reykjavíkurflugvelli. Isavia heldur reglulega flugslysaæfingar á stærstu flugvöllum landsins. Í dag var komið að umfangsmikilli flugslysaæfingu á Reykjavíkurflugvelli og voru sjálfboðaliðar mættir eldsnemma til að láta mála á sig meiðsli og aðra áverka til að gera æfinguna sem raunverulegasta. Klukkan ellefu hófst síðan æfingin sjálf þegar kveikt var í bílahrúgum sem áttu að vera flak flugvélar Puffin Air sem átti að hafa brotlent á vellinum eftir að eldur hafði komið upp í hreyfli vélarinnar. Slökkviliðsmenn mættu stuttu síðar til að slökkva eldinn og mátti sjá aðra viðbragðsaðila svo sem lögreglu, sjúkraflutningamenn, björgunarsveitir og fleiri flykkjast að innan tíðar. Þegar búið var að slökkva allan eld fóru menn að athuga með farþega vélarinnar sem voru á víð og dreif um svæðið og huga að fólki sem var enn fast í flaki vélarinnar en meðal annars þurfti að beita klippum til að ná þeim út. Meðal farþega var kona og níu ára sonur hennar, konan er langt gengin með sitt annað barn og hafði hún fengið högg í kviðinn í slysinu. Verkefni fyrsta hópsins sem kemur til hennar er að skrá og greina ástand hinna slösuðu. Konan fær rauða merkingu sem þýðir að hún sé í forgangshópi fyrir flutning af svæðinu. Eftir nokkra bið eru hún og sonur hennar flutt í söfnunarstöð slasaðra þar sem öllum er safnað saman og fyrsta hjálp veitt. Að lokum er konan flytur sjúkrabíll konuna á Landsspítalann í Fossvogi þar sem tekið er á móti henni og ákveðið hvers konar meðferð hún þarf að fá og kallað á kvensjúkdómalækni. Á sama tíma söfnuðust aðstandendur saman í MH og biðu þar fregna af sínum ástvinum eins og um alvöru slys væri að ræða. Æfingin hefur verið í undirbúningi í um þrjá mánuði en gríðarlegur fjöldi fólks kemur að henni. „Þetta er trúlega stærsta æfing sem Isavia hefur staðið fyrir, heildarfjöldi þátttakenda er um 630 manns, það er þá bæði þeir sem eru að búa til æfinguna, leikarar og þeir sem skipuleggja sem og þeir sem eru að leysa atburðinn, en það eru 510 einstaklingar sem beint og óbeint koma að því að leysa úr aðgerðum," segir Árni Birgisson, samræmingarstjóri flugvalla Isavia. Hann segir æfingu sem þessa hafa mikla þýðingu fyrir viðbragðsaðila á svæðinu. „Flugslys er jú ekki annað en bara hópslys og kannski það slys sem lang minnstar líkur eru á að eigi sér stað en þessi undirbúningur og æfing gagnast eins vel fyrir annað hópslys sem viðbragðsaðilar á höfuðborgarsvæðinu stæðu fyrir.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Sjá meira