Margrét Lára: Það væri stórkostlegt að vinna riðilinn og komast beint á EM Óskar Ófeigur Jónsson í Osló skrifar 19. september 2012 13:30
Margrét Lára Viðarsdóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu eiga góðar minningar frá fyrri leiknum á móti Noregi sem vannst 3-1 á Laugardalsvellinum fyrir ári síðan. Í dag mætast liðin aftur og nú á Ullevaal-leikvanginum í Osló. Þetta er lokaleikur liðanna í undankeppni EM og hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Svíþjóð næsta sumar en íslenska liðinu nægir jafntefli til að koma á annað Evrópumótið í röð. „Við náðum að sprengja fyrri hálfleikinn upp á móti þeim í fyrri leiknum og komum þeim svoílítið í opna skjöldu. Þær unnu seinni hálfleikinn 1-0 á Laugardalsvelli og við þurfum að gera betur en það. Ef við vinnum báða hálfleikina þá vitum við hvað það gefur okkur. Við erum með sjálfstraust en það gefur okkur ekkert á morgun (í dag) því við verðum að vera klárar í leikinn," segir Margrét Lára. „Ég veit ekki hvort að það hafi verið tilviljun en Noregur-Ísland er síðasti leikurinn í riðlinum. Maður gat gefið sér það fyrir keppnina að norsku stelpurnar yrðu okkar helsti keppinautar en svo hafa Belgar komið gríðarlega sterkir inn og komið mikið á óvart. Við getum nagað okkur í handarbökin með leikina við Belga því við værum ekki í þessari stöðu í dag ef við hefðum klárað báða þá leiki," segir Margrét Lára en íslenska liðið tapaði fimm stigum í leikjunum tveimur á móti Belgíu. Margrét Lára segir norska liðið skipað reynslumiklum og sigursælum leikmönnum og að öll pressan sé á þeim norsku í leiknum í dag. „Þær eru með leikmenn sem hafa unnið allt á sínum ferli, hafa náð flottum úrslitum allstaðar og hafa unnið stórmót. Við eigum ekki enn leikmenn sem hafa unnið stórmót en kannski gerist það í framtíðinni. Þær hafa kannski reynsluna en pressan er líka á þeim. Þær eru á heimavelli, þær eru ofar á styrkleikalistanum og við eigum að vera minna liðið á morgun (í dag). Pressan er á þeim og ekki minnkaði hún þegar þeir færðu leikinn hingað," segir Margrét Lára en norsku stelpurnar eru ekki vanar því að spila heimaleikina á Þjóðarleikvanginum á Ullevaal. „Það er mikið undir hjá báðum liðum og þetta er bara úrslitaleikur. Ef þjóðin getur ekki stillt á RÚV í dag þá veit ég ekki hvenær hún getur gert það. Við lofum skemmtilegum leik og við ætlum okkur áfram og beint á EM. Ég sagði það fyrir fjórum árum að það væri frábært að komast á EM en það væri stórkostlegt að vinna riðilinn og komast beint á EM. Ég stenf fast við þau orð því það er stórtkostlegt. Ég vona það innilega að fólk geri sér grein fyrir því hvað við erum að fara út í mikilvægan leik í dag," sagði Margrét Lára en leikurinn hefst klukkan 17.30 að íslenskum tíma.
Fótbolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti DocZone snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjá meira