Örmagnaðist á Laugavegi Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. september 2012 16:41
Björgunarsveitamenn úr Rangárvallasýslu sóttu í dag mann á Laugaveginn, gönguleiðinni milli Þórsmerkur og Landmannalauga. Maðurinn var orðinn afar þreyttur og treysti sér ekki til að ganga lengra. Björgunarsveitir fóru á þremur bílum á svæðið þar sem mikið vatn er í ám og því óráðlegt að vera einbíla á ferð. Þá drógu meðlimir Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli bíl upp úr Kirkjufellsósi á Landmannalaugasvæðinu í dag. Hópur frá sveitinni var í vinnu í dag við að stika gönguleiðina á Fimmvörðuháls en þurfti frá að hverfa til að flytja blautt göngufólk niður að Skógum. Slysavarnafélagið Landsbjörg vill benda fólki á breyttar veðurhorfur á hálendinu. Þar fer nú ört kólnandi og má reikna með mikilli úrkomu og jafnvel snjókomu á næstu dögum. Fólk er því beðið um að búa sig vel í haustveðrinu og gæta fyllstu varúðar áður en lagt er í lengri gönguferðir. Ökumenn gæti sérstakrar varúðar þegar þvera þarf ár þar sem þær eru margar hverjar afar vatnsmiklar vegna mikilla rigninga.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Sjá meira