Guðlaugur Victor lánaður til Hollands Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. ágúst 2012 13:56 Guðlaugur Victor í leik með Red Bulls. Nordicphotos/Getty
Guðlaugur Victor Pálsson verður lánaður til hollenska félagsins NEC Nijmegen í efstu deild hollenska boltans. Þetta staðfesti Guðlaugur Victor í samtali við íþróttadeild Vísis í dag. „Forráðamenn félagsins sáu mig með U21 landsliðinu í Noregi í júní. Þeir höfðu samband við Red Bulls eftir það, vildu kaupa mig en New York vildi ekki selja," segir Guðlaugur Victor. Miðjumaðurinn flýgur í kvöld til Þýskalands og heldur í framhaldinu til Hollands þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun á morgun. Hann segir málið því í raun ekki frágengið en reiknar ekki með öðru en allt fari vel. „Ég ætti nú ekki að falla á læknisskoðuninni en maður veit aldrei," segir Guðlaugur Victor léttur. Guðlaugur Victor hefur leikið með New York Red Bulls í MLS-deildinni vestanhafs undanfarið hálft ár. Hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu en þó tekið þátt í sautján leikjum félagsins. „Eftir að við keyptum Tim Cahill fór mínútunum að fækka svo umboðsmaðurinn minn og ég spurðum hvort það væri ekki sniðugt að ég færi á láni," segir Guðlaugur Victor sem hefur komið víða við erlendis þótt hann sé aðeins 21 árs. Guðlaugur Victor var á leiðinni frá New Jersey yfir á Manhattan-eyju í New York þar sem hann ætlaði að njóta síðasta dagsins áður en hann fer í flugið í kvöld. Hann hlakkar mikið til að spila í Hollandi. „Þeir sjá mig sem djúpan miðjumann. Deildin er góð og liðið er sterkt svo ég hlakka rosalega mikið til." Guðlaugur Victor hittir fyrir félaga sína úr yngri landsliðum Íslands í Hollandi. Kolbeinn Sigþórsson leikur með Ajax, Jóhann Berg Guðmundsson með AZ Alkmaar og Alfreð Finnbogason með Heerenveen.
Fótbolti Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Fleiri fréttir Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjör: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Sjá meira