Verður Drogba og Anelka fórnað í valdabaráttu innan Shenhua? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. ágúst 2012 10:30 Didier Drogba og Nicolas Anelka. Mynd/Nordic Photos/Getty
Didier Drogba og Nicolas Anelka eru frekar nýkomnir til kínverska félagsins Shanghai Shenhua en svo gæti farið að þeir verði báðir seldir á næstunni vegna valdabaráttu innan félagsins. Stjórnarformaðurinn Zhu Jun er ósáttur að hafa ekki meiri völd innan félagsins. Zhu Jun er búinn að dæla meira en 94 milljónum dollara inn í félagið undanfarið fimm og hálft ár en á engu að síður aðeins 28,5 prósent hluta í klúbbnum. Zhu Jun á félagið ásamt fimm ríkisreknum fyrirtækjum en segist ekki ætla að eyða meiri peningi í félagið nema ef að hann fái meiri völd. Samkvæmt nýju samkomulagi þá fengi hann 70 prósent eignarhlut í félaginu ef hann sé tilbúinn að leggja til 23,6 milljónir dollara á næstu tveimur árum. Takist ekki að sannfæra Zhu Jun um að halda áfram að borga háar upphæðir inn í rekstur félagsins þá gæti Shanghai Shenhua neyðst til að selja þá Didier Drogba og Nicolas Anelka. Peningarnir frá Zhu Jun fara aðallega í að borga laun félagsins en bæði Drogba og Anelka fá meira en 300 þúsund dollara í vikulaun eða 36,5 milljónir íslenskra króna. Shanghai Shenhua hefur ekki grætt mikið á komu Didier Drogba og Nicolas Anelka því liðið er bara í 10. sæti í þessari sextán liða deild. Guangzhou Evergrande er á toppnum með 20 stigum meira.
Fótbolti Mest lesið „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport „Hann er örugglega góður pabbi“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Sjá meira