Fótbolti

Stuðningsmenn Rússa bauluðu á Arshavin

Andrei Arshavin er alls ekki í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum rússneska landsliðsins þessa dagana og þeir létu hann heyra það í leik Rússa í gær.

Arshavin lenti í rifrildi við stuðningsmenn Rússa er liðið féll úr leik á EM. Hann sagði svo í viðtali eftir leikinn að það væri vandamál stuðningsmannanna en ekki leikmanna að þeir hefðu ekki staðið undir væntingum þeirra.

Þessi ummæli eru ekki gleymd og allur völlurinn baulaði þegar hann kom af bekknum. Ótrúleg uppákoma sem má sjá í myndbandinu hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×