Fótbolti

Þór á toppinn | Höttur henti ÍR í botnsætið

Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs.
Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs.
Þór frá Akureyri komst í kvöld í toppsæti 1. deildar er liðið vann góðan heimasigur á BÍ/Bolungarvík sem oft er einfaldlega kallað Skástrikið.

Eftir að hafa lent snemma undir komu Þórsarar til baka en Skástrikið jafnaði skömmu fyrir leikslok. Þórsarar lögðu ekki árar í bát og Ármann Pétur sá til þess að liðið fékk þrjú stig og komst á toppinn. Þór er með eins stigs forskot á Víking Ó.

Höttur sendi ÍR niður í botnsæti deildarinnar með stórsigri fyrir austan. Höttur var í botnsætinu fyrir leikinn en hefur nú stigi meira en ÍR.

Úrslit:

Höttur-ÍR 5-1

1-0 Davíð Einarsson (7.), 2-0 Davíð Einarsson (24.), 3-0 Elvar Þór Ægisson (69.), 4-0 Davíð Einarsson (73.), 4-1 Marteinn Gauti Andrason (81.), 5-1 Jónas Ástþór Hafsteinsson (90.)

Þór-BÍ/Bolungarvík 3-2

0-1 Mark Tubæk (5.), 1-1 Chukwudi Chijindu (8.), 2-1 Ármann Pétur Ævarsson (49.), 2-2 Alexander Jackson Möller (86.), 3-2 Ármann Pétur Ævarsson (88.)

Úrslit frá urslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×