Kristianstad og Malmö unnu Íslendingaslagina Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 19. ágúst 2012 15:58 Sara Björk skoraði fyrir topplið Malmö. MYND/DANÍEL
Það voru tveir Íslendingaslagir í sænsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag. Kristianstad sigraði Örebro 4-0 þar sem Katrín Ómarsdóttir var á meðal markaskorara og Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fyrsta mark Malmö í 4-0 sigri á Djurgården. Sif Atladóttir og Katrín Ómarsdóttir léku báðar allan leikinn fyrir Kristianstad sem vann sinn fjórða sigur í fimm leikjum þegar liðið lagði Örebro. Edda Garðarsdóttir var í byrjunarliði Örebro og lék allan leikinn. Guðný Björk Óðinsdóttir er sem fyrr meidd og lék því ekki með Kristianstad sem leikur undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur. Katrín Ómarsdóttir skoraði annað mark Kristianstad á 60. mínútu en Therese Andersson skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 25. mínútu. Susanne Moberg skoraði þriðja markið á 68. mínútu og það var svo fjórum mínútum fyrir leikslok að Elin Nilsen skoraði fjórða markið. Það tók Malmö ekki langan tíma að gera út um leikinn á móti Djurgården. Sara Björk skoraði á 2. mínútu, Þjóðverjinn Katrin Schmidt bætti öðru marki við á 13. mínútu og landa hennar Anja Mittag skoraði þriðja markið sex mínútum síðar. Katrine Veje frá Danmörku bætti fjórða markinu við fimm mínútum fyrir leikslok. Þóra Helgadóttir varði mark Malmö og Sara Björk lék allan leikinn. Guðbjörg Gunnarsdóttir sat á varamannabekk Djurgården allan leikinn og Katrín Jónsdóttir er meidd. Malmö er sem fyrr á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar, með 33 stig í 13 leikjum. Kristianstad lyfti sér upp í þriðja sætið með 25 stig. Örebro er í bullandi fallbaráttu með 10 stig, stigi á undan AIK og Djurgården situr sem fastast á botninum með 6 stig.
Mest lesið „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Íslenski boltinn Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Fótbolti Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ „Þurfum að nýta góðu kaflana betur“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Rúnar Alex fékk á sig fjögur þegar FCK tapaði fyrsta deildarleiknum „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Sjá meira