Fótbolti

Glæsimark Alfreðs í sigri á Sunderland

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason var enn á skotskónum með liði sínu Helsingborg í æfingaleik gegn enska úrvalsdeildarfélaginu Sunderland í gær.

Alfreð kom heimamönnum yfir á 70. mínútu með einkar laglegu marki. Hann fékk þá boltann nokkuð utan vítateigs, lagið hann fyrir sig og sendi af nærstönginni og í netið.

Heimamenn bættu við öðru marki tveimur mínútum síðar og tryggðu sér 2-0 sigur. Mörkin úr leiknum má sjá í þessum samantektarpakka úr leiknum.

Sunderland undirbýr sig fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst aðra helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×