Bjartsýn fyrir seinni hálfleik 9. ágúst 2012 19:00 Siv Friðleifsdóttir. "
Það hittist þannig á að ég er á Grænlandi og verð þar á þessum tímamótum," segir Siv Friðleifsdóttir alþingismaður sem á fimmtíu ára afmæli á morgun. Það var ekki með ráðum gert að vera að heiman á afmælisdaginn; Siv er í vinnuferð á fundi með stjórn Norræna menningarsjóðsins sem ræðir nú framtíðaráherslur sínar. Hún sýtir það hins vegar ekki að vera á Grænlandi á afmælinu. "Þetta er frábært, Grænland er mjög skemmtilegt land; ég er búin að kaupa falleg grænlensk kerti sem ég kveiki kannski á í tilefni dagsins á morgun og á sjálfsagt eftir að hafa það huggulegt með starfsfélögum mínum í stjórn menningarsjóðsins." Siv hefur gaman af því að halda upp á afmælisdaginn sinn og hefur jafnan efnt til veislu á stórafmælum. "Öll hafa þau verið vel heppnuð og eftirminnileg." En þar sem hún er ekki heima á sjálfan afmælisdaginn í ár hefur hún ekki enn ákveðið hvort hún ætli að blása til fagnaðar. "Ég er með ákveðna dagskrá í huga en hún veltur á veðrinu og ég á eftir að sjá hvernig veðurspáin verður áður en ég segi af eða á með það." Siv segir það gleðileg tímamót að verða fimmtug. "Þá hefur maður vonandi náð ákveðnum þroska og metur hlutina aðeins öðruvísi en þegar maður var yngri. Maður er búinn að ala upp börnin, koma drengjunum nokkurn veginn á legg, svo nú tekur við nýtt skeið sem ég held að verði mjög skemmtilegt." Siv hefur setið á Alþingi síðan 1995 í sautján ár. Spurð um framtíðina, hvort hún sé mögulega farin að hugsa um að skipta um starfsvettvang, segir hún ekkert afráðið í þeim efnum. "Hvernig sem fer er ég að minnsta kosti mjög spennt fyrir seinni hálfleiknum sem fer nú í hönd og held ég að þetta eigi eftir að verða góður tími."
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira