Klifraði nokkru sinnum upp girðingu áður en öryggisvörður birtist Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 12. júlí 2012 21:00
Eftirlit hefur verið eflt við girðingu á flugvallarsvæðinu í Keflavík eftir að tveimur mönnum tókst að smygla sér um borð í flugvél. Unnið var að því að setja upp gaddavír á ákveðnum svæðum í dag þar sem áður var auðvelt að komast yfir girðinguna. Öryggismál á Keflavíkurflugvelli hafa verið í umræðunni eftir að tveimur hælisleitendum tókst um helgina að smygla sér um borð í flugvél sem var á leið til Kaupmannahafnar. Þeir fundust inni á klósetti vélarinnar skömmu áður en hún átti að fara í loftið. Í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér var greint frá því að mennirnir hafi komist yfir girðingu inn á svæðið. Fréttastofa ákvað að kanna hversu auðvelt það er. Misjafnt er hversu há girðingin og gaddavír er ekki á allri girðingunni. Í dag var unnið að því að setja slíkan vír upp á ákveðnu svæði mjög nærri flugstöðinni. Þar var áður nokkuð auðvelt að klifra upp girðinguna líkt og við reyndum í dag. Þá hafði fréttamaður klifrað upp girðinguna á nokkrum stöðum áður en öryggisfulltrúar stöðvuðu hann. Það er í höndum Flugmálastjórnar að hafa eftirlit með þeim fyrirtækjum sem sjá um Keflavíkurflugvöll og öryggið þar. Einar Örn Héðinsson framkvæmdastjóri flugöryggissviðs Flugmálastjórnar Íslands segir að strax eftir atvikið hafi verið gripið til ráðstafana. „Það er búið að efla eftirlit við það sem skilur svæðið þar sem almenningur er og haftasvæðið. Í þessu tilviki er það girðing. Það er í sjálfu sér ekki krafa um girðingu. Það gæti verið annar búnaður. Til dæmis er ekki gaddavír þarna og það er ekkert endilega krafa um það," segir Einar Örn. Einar segir það í skoðun hvernig mönnunum tókst að komast alla leið inn í flugvélina. Þegar svona gerist er yfirleitt fleira en eitt sem bregst. Málið sé litið alvarlegum augum.
Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Fleiri fréttir Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Sjá meira