Hótað lífláti fyrir neikvæða gagnrýni 18. júlí 2012 22:00 The Dark Knight Rises verður frumsýnd hér á landi 25. júlí næstkomandi. mynd/AP
Stjórnendur kvikmyndavefsíðunnar Rotten Tomatoes hafa lokað fyrir athugasemdir notenda á nýjustu Batman kvikmyndina. Þetta var ákveðið eftir að gagnrýnanda var hótað lífláti vegna neikvæðrar umfjöllunar um The Dark Knight Rises. Gríðarleg eftirvænting er fyrir myndinni en hún er þriðja og síðasta kvikmynd leikstjórans Christopher Nolan um Batman. The Dark Knight, sem kom út árið 2008, er ein vinsælasta kvikmynd allra tíma og er af mörgum besta ofurhetjukvikmynd fyrr og síðar. Það ríkir því mikil spenna meðal aðdáenda. Gagnrýnandinn Marshall Fine kynntist því af eigin raun. Fine var ekki hrifinn af The Dark Knight Rises, hasarinn var of mikill að hans mati og líkti hann myndinni við Transformers kvikmyndirnar. Stuttu eftir að gagnrýnin birtist á Rotten Tomatoes hafði fjöldi hótana í hans garð birst í athugasemdakerfi síðunnar. Það sem fór hvað mest í taugarnar á aðdáendunum var að Fine dró línu milli The Dark Knight Rises og Transformers. Einn notandi sagði að Fine ætti að brenna til dauða fyrir skrifa slíkan ófögnuð. Matt Atchity, ritstjóri Rotten Tomatoes, hefur nú látið loka fyrir athugasemdir á The Dark Knight Rises. Það er síðan vert að benda á að kvikmyndinn hefur annars fengið afar góða dóma frá nær öllum kvikmyndagagnrýnendum.
Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Sjá meira