Innlent

Þurfa að greiða 110 milljónir í veiðigjöld

Höskuldur Kári Schram skrifar
Sjávarútvegsfyrirtæki í Vesturbyggð þurfa að greiða hundrað og tíu milljónir í veiðigjöld á næsta ári. Framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Odda á Patreksfirði segir að fyrirtækið muni draga úr fjárfestingum til að mæta auknum útgjöldum.

Sjávarútvegsfyrritækin munu greiða hátt í þrettán milljarða í veiðigjöld á næsta ári en frumvarp þess efnis var afgreitt á síðasta degi alþingis fyrir sumarfrí.

Á sunnanverðum Vestfjörðum óttast margir þau áhrif sem veiðigjöldin kunna að hafa á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. jafnvel hefur verið talað fólksflótta og fjöldagjaldþrot í þessu samhengi.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, efast um að fyrirtækin í sveitarfélaginu ráði við slíka gjaldtöku.

„Þau fyrirtæki sem eru burðarásinn í atvinnulífinu hér eru skuldsett og 110 milljónir í auknar álögur fyrir þau fyrirtæki eru bara mjög - er alltof mikið. Það bara gengur ekki upp," segir Ásthildur.

Nú er búið að samþykkja þetta - getið þið brugðist við þessum með einhverjum hætti núna? „ja, þarf maður ekki að taka því eins og hverju öðru hundsbiti?" svarar Ásthildur.

Sigurður Viggósson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Odda á Patreksfirði, tekur í sama streng.

„Það er ekkert jákvætt við slíkt þegar er verið að setja aukaskatta á atvinnugrein, sérstaklega á stöðum eins og hér, frekar efnalítil svæði og þetta, og skatturinn nægilega hár hér sem ríkið tekur og við vitum allir að þessi skattur rennur til Reykjavíkur og hann fer ekki aftur til baka," segir Sigurður.

Sigurður segir að fyrirtækið muni draga úr fjárfestingum.

„Við munum ekki segja upp fólki. það verður það síðasta sem við gerum, allavega eins og málin standa núna en við munum draga úr fjárfestingum og leita að sparnaði að öðru leyti því að við vitum að þetta tekur dálítið í pyngjuna en við ætlum okkur að lifa af þessa, þessu nýju skatta," segir Sigurður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×