Innlent

Ótrúlegt stuð í allan dag

Mikið var um að vera í Reykjavík í dag og voru ljósmyndarar Fréttablaðsins að sjálfsögðu á svæðinu. Á Ingólfstorgi síðdegis í dag var haldið árlegt kassabílarall frístundaheimilanna í Vesturbænum. Krakkarnir í Ísaksskóla söngu tröppusöng ásamt kennurum sínum og kvöddu kennarann sinn í skólastofunni.

Um 300 börn skemmtu sér saman við leiki á borð við snú snú, stórfiskaleik og reiptog í Laugardalnum í tilefni af Degi barnsins.

Og Rimaskóla voru afhent hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur fyrir verkefnið „leiksýning í grenndarskóginum“.

Á myndunum hér til hliðar má sjá myndir frá þessum atburðum.

Krakkarnir í stuði í dag.Mynd/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×