Innlent

Dagur afboðar komu sína á fund Útgerðarmannafélags Reykjavíkur

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur afboðað komu sína á fund sem Útgerðarmannafélag Reykjavíkur hafði óskað með honum sem varaformanni Samfylkingarinnar og formanni Borgarráðs. Dagur tilkynnir þetta á Facebook síðu sinni en þar útskýrir hann ástæðuna svona:

„Þessar aðgerðir LÍÚ eru algerlega óásættanlega. Það er sorglegt að útgerðarmenn í Reykjavík virðast ætla að taka undir þær og augljóst að ekki er hægt að eiga fundi undir formerkjum óbilgirni af þessu tagi."

Þarna vísar Dagur til ákvörðunar aðildarfélaga LÍÚ um að fara ekki til veiða í næstu viku til þess að mótmæla kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar sem eru til meðferðar hjá Alþingi.

Hart hefur verið deilt um ákvörðunina, meðal annars sagði Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna í dag, að ákvörðunin um að halda flotanum heima, væri ógeðfelld.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, hefur boðið stjórnmálamönnum á fund með útgerðinni á þriðjudaginn þar sem hann vonast til þess að útgerðarmenn og stjórnmálamenn geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri.


Tengdar fréttir

Býður stjórnmálamönnum á fund: "Komi þeir sem þora“

„Ég hvet hér með Steingrím J. Sigfússon til þess að mæta og ræða við okkur og sjómenn Brims á opnum fundi næsta þriðjudag," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, en hann ætlar að standa fyrir opnum fundi í Brimshúsi á miðbakkanum á Reykjavíkurhöfn klukkan tólf næsta þriðjudag.

Steingrímur J. Sigfússon segist sleginn yfir útspili LÍÚ

"Ég er ansi hugsi og sleginn yfir þessum síðasta útspili LÍÚ,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, um boðaða vinnustöðvun skipaflota aðildarfélaga LÍÚ, sem var tilkynnt um í dag. Steingrímur segist líta á útspilið sem einhverskonar yfirlýsingu um að LÍÚ telji sig hafa tapað rökræðunni.

Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp

"Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna.

Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni

LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi.

Björn Valur segir ákvörðun LÍÚ og aðildarfélaga ógeðfellda

"Í fyrsta lagi finnst mér þetta afar ógeðfellt af þeirra hálfu, sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna um ákvörðun LÍÚ og aðildarfélög sambandsins um að halda ekki til veiða á mánudaginn eftir sjómannadag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×