Afmælishátíð Bretlandsdrottningar í myndum BBI skrifar 5. júní 2012 13:59 Elísabet drottning í konunglegu stúkunni við kappreiðabrautina í Epsom. Mynd/AFP
Elísabet bretlandsdrottning fagnaði 60 ára valdaafmæli sínu nú um helgina. Hún er annar þjóðhöfðinginn í sögu Englands sem hefur náð þessum embættisaldri, en Viktoría Bretlandsdrottning sat í 63 ár. Mikið var um dýrðir á Englandi þegar haldið var upp á demantsafmæli Elísabetar drottningar. Helgin hófst við kappreiðabraut við Epsom en sá staður ku vera í uppáhaldi hjá drottningu. Þar söng sópran söngkonan Katherine Jenkins þjóðsönginn. Daginn eftir var söguleg skrúðsigling niður Temsá (Thames). Þá sigldu þúsund bátar af öllum stærðum og gerðum niður ána drottningu til heiðurs og minntu þannig á konunglegar skrúðsiglingar sem voru algengar á fyrri tíð. Yfir 20.000 manns voru á bátunum en yfir milljón áhorfendur á bökkunum. Í gær voru svo demantsafmælistónleikar í Buckingham höll þar sem tónlistarmenn eins og Robbie Williams, Dame Shirley Bassey, Sir Cliff Richard, Stevie Wonder og Elton John komu fram. 10.000 miðar voru seldir á tónleikana. Hápunktur gærdagsins var þegar tendruð voru yfir 4.200 smábál, nokkurs konar vita-keðja sem lá yfir hnöttinn endilangan. Fyrsti vitinn var í bænum Blenheim í norður Nýja-Sjálandi. Drottning kveikti sjálf í þeim síðasta sem var í London. Vitakeðjan er endurgerð af elsta skilaboðakerfi Breta. Upphaflega hugmyndin var að hafa 2.012 vita en þegar upp var staðið var slíkur áhugi á þátttöku um allan heim að vitarnir urðu yfir 4000. „Það kristallar þá væntumþykju og virðingu sem Elísabet nýtur meðal heimsbyggðarinnar." Í dag fór fram þakkargjörðarathöfn í St. Pauls kirkju. Athöfnin markar lok hátíðarhaldanna.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira