"Hvar voru allir þessir fréttamenn fyrir 40 árum?" 5. júní 2012 20:15
Rússneski söngvarinn, sem myndbandavefurinn Youtube gerði óvænt heimsfrægan á gamalsaldri sem Trololo, lést í Sánkti Pétursborg í gær, 77 ára að aldri. Hann hét í raun Edvard Kihl, hafði verið þekktur í gömlu Sovétríkjunum fyrir 40 árum, en flestum gleymdur þar til fyrir tveimur árum að einhver fann gamalt myndband af honum úr sovéska sjónvarpinu frá árinu 1976 og setti á Youtube. Þetta var 21. febrúar 2010. Skemmst er frá því að segja, hann sló í gegn á netinu, mánuði síðar höfðu yfir þrjár milljónir manna séð myndbandið, talan hækkaði fljótlega í tólf milljónir manna, - allir hrifust af þessum glaðlynda söngvara, sem söng bara „trolololo". Auk þess hafa milljónir til viðbótar horft á ótal grínútgáfur af söngnum. Herra Trololo varð þannig óvænt heimsfræg stjarna vegna Youtube, Rússar settu hann aftur á stall og sjónvarpsstöðvar kepptust um gamla manninn. Sjálfur varð hann steinhissa, hélt fyrst að einhverjir væru að fíflast með sig en spurði svo: „Hvar voru allir þessir fréttamenn fyrir 40 árum?" Þessarar endurnýjuðu frægðar naut hann þó ekki lengi, hann veiktist alvarlega fyrir tveimur vikum og lést á sjúkrahúsi í gær.
Mest lesið Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fleiri fréttir Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming Sjá meira