Guðgeir vildi að hann hefði eytt meiri tíma í World of Warcraft 8. júní 2012 13:39 Guðgeir Guðmundsson áður en hann var handtekinn. Hann sagði fyrir rétti að hann hefði oft íhugað sjálfsmorð. „
Ég íhugaði mikið að fremja sjálfsmorð," sagði Guðgeir Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þar sem réttað er yfir honum út af lífshættulegri árás en hann stakk Skúla Eggert Sigurz ítrekað með hnífi þannig að minnstu munaði að Skúli létist af áverkum sínum. Guðgeir var mjög þunglyndur fyrir atvikið en sjálfur segist hann varla hafa sofið í tvær vikur fyrir árásina örlagaríku á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum. Hann sagðist hafa andúð á lögfræðingum og vildi óska þess að hann hefði eytt meiri tíma í tölvuleik. Guðgeir segist hafa verið í sérkennilegu móki fyrir atburðinn. Hann hafi mætt til vinnu sama dag, og reynt að leyna ástandi sínu. Allt út af 80 þúsund króna skuld en hann hafði fengið sent bréf þar sem hótað var að bjóða íbúðina hans upp.Tvær raddir Guðgeir man gloppótt eftir árásinni sjálfri, en gat engu að síður lýst mörgum smáatriðum þegar hann mundi eftir atvikum. Þannig lýsir Guðgeir miklum geðshræringum undir dofnu yfirbragði þar sem hann átti í samskiptum við Skúla. Eins og fyrr hefur verið greint frá tók Skúli í hönd Guðgeirs en það var þá sem Guðgeir stakk Skúla af öllu afli í síðuna. Guðgeir lýsti svo nokkrum sinnum þegar hann kraup yfir líkama Skúla í örvæntingu eftir að þeir féllu í jörðina í átökum sín á milli. Þannig segist hann hafa oft spurt sig hvern fjandann hann hefði gert, eins og hann orðaði það sjálfur. Hann lýsti því síðan að það væri eins og tvær raddir tækjust á í huga hans, önnur vildi ná stjórn á aðstæðunum á meðan hin vildi halda æsingnum áfram. Það var þá sem Guðni Bergs kom inn á skrifstofuna. Guðgeir segist hafa séð svartan skugga koma inn, sjálfur muni hann ekkert frá átökunum þeirra á milli en hann stakk Guðna tvívegis í lærið áður en hann var yfirbugaður.Þið áttuð þetta skilið Guðni gaf skýrslu fyrir réttarhöldin, en ríkissaksóknari spurði Guðgeir hvort hann mundi eftir samskiptum þeirra á milli. Guðgeir sagðist ekkert muna. Ríkissaksóknari spurði þá hvort hann mundi eftir því að hafa sagt, „Þið áttuð þetta skilið,"? Það gerði Guðgeir ekki heldur. Spurður út í andúð sína á lögfræðingum svaraði Guðgeir: „Ég hef aldrei heyrt neitt gott um lögfræðinga." Hann játaði að hann hefði andúð á starfsstéttinni en ástæðan væru reynslusögur vina og fjölskyldu um löglærða einstaklinga. Hann hafði áður aldrei átt í samskiptum við lögfræðinga. Þess má geta að Skúli starfaði ekki sem lögmaður. „Ég hef reynt að forðast öll samskipti við þessa starfsstétt," sagði Guðgeir og rifjaði upp sögu af afa sínum sem átti að hafa verið hlunnfarinn eftir að hafa farið að ráðum lögfræðings á níunda áratug síðustu aldar. Geðlæknir sem síðar bar vitni sagði að Guðgeir væri greindur maður, en illa haldinn af þunglyndi og að hann ætti að erfitt með að hafa samúð með lögfræðingum. Þannig lýsti hann ekki mikilli eftirsjá vegna embættismannsins Skúla, en hann er framkvæmdastjóri Lagastoða, og er ekki löglærður, en sæi verulega eftir því að hafa skaðað manneskjuna Skúla Eggert. Hann var engu að síður metinn sakhæfur.Lagður í einelti Guðgeir sagðist einu sinni áður hafa orðið jafn reiður og þegar hann réðist á Skúla. Það var þegar hann var tólf ára gamall, en þá hafði hann verið lagður í heiftarlegt einelti í skóla. „Ég missti stjórn á skapi mínu og henti drengnum sem lagði mig í einelti í jörðina. Svo áttaði ég mig skyndilega á því að ég var með hægri fót á lofti og ætlaði að trampa ofan á andlitinu á honum, en ég náði stjórn á mér og kom mér í burtu," lýsti Guðgeir sem var lagður í mikið einelti að eigin sögn frá sjö til fjórtán ára aldurs. Einelti tengdi hann helst við einn geranda, þó fleiri hafi níðst á honum að eigin sögn. Guðgeir sagðist að auki tortrygginn gagnvart öðru fólki og að hann hefði verið svikinn af nær öllum nema eigin fjölskyldu. Spurður um eftirsjá sagðist Guðgeir sjá eftir því að hafa keypt mótorhjól sem kom honum upprunalega í skuldavandræði. Hann sagðist sjá eftir því að hafa skrifað undir lánið og hitt Skúla. Þá sagðist hann sjá eftir því að hafa ekki eytt meiri tíma í tölvuleiknum World of Warcraft. Þá greip ríkissaksóknari fram í fyrir honum og spurði hvort hann sæi eftir því að hafa skaðað Skúla. Guðgeir svaraði þá: „Já, það á enginn að gera svona lagað. Ég tek fulla ábyrgð á því."
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Erlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Fleiri fréttir Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Sjá meira