Innlent

Jónas nýr formaður Lögmannafélagsins

BBI skrifar
Mynd/Pjetur
Jónas Þór Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður, var í kvöld kosinn nýr formaður Lögmannafélags Íslands. Auk Jónasar gaf Eva Bryndís Helgadóttir, hæstaréttarlögmaður, kost á sér. Jónas varð hlutskarpari og tekur því við af fráfarandi formanna Brynjari Níelssyni.

Jónas er að vonum ánægður með þann stuðning sem hann fékk og hlakkar til að takast á við starfið.

„Mig langar til að þakka Evu fyrir drengilega og góða kosningabaráttu," segir Jónas, en hann hlaut um 68% greiddra atkvæða. Atkvæðin voru alls um 260.

Fráfarandi formaður félagsins, Brynjar Níelsson, hefur látið mikið að sér kveða í þjóðfélagsumræðunni meðan hann gegnir starfanum.

„Ég held að hver verði að fá að hafa sitt lag í formannsembætti sem þessu," segir Jónas og er því ekki viss um að hann muni láta jafnmikið að sér kveða. Hann tekur þó fram að Brynjar hafi staðið sig mjög vel sem formaður og telur hann hafa barist fyrir mörgum þörfum málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×