Slóvenar og Austurríkismenn í diplómatískri deilu 20. apríl 2012 23:33 Kranjska-pylsan þykir lostæti á landamærum Slóveníu og Austurríkis.
Diplómatísk deila hefur blossað upp milli Slóveníu og Austurríkis. Þrætueplið er fábrotin pylsa. Í Slóveníu er pylsan kölluð „Kranjska klobasa" á meðan Austurríkismenn hafa löngum kallað hana „Krainerwurst." Nöfnin vísa bæði til sömu pylsunnar en hún þykir lostæti og er rótgróin matarhefð á landamærum landanna. Þá er pylsan sögð samofin menningararfi Slóveníu og Austurríkis. En Slóvenar hafa nú farið fram á að fá einkaleyfi á nafninu. Yfirvöld í landinu hafa sent inn umsókn til Evrópusambandsins um að pylsan og nafn hennar verði færð undir umsjá Slóvena vegna uppruna hennar og landfræðilegrar tilvísunar. Austurríkismenn eru ekki hrifnir af þessari þróun mála.Slóvenar krefjast þess að Evrópusambandið skilgreini pylsuna sem landfræðilega eign þeirra.mynd/AP„Það mun enginn koma í veg fyrir að við njótum Krainer-pylsunnar," sagði Niki Berlakovich, landbúnaðarráðherra Austurríkis. Hann sagði að pylsan gegndi mikilvægu efnahagslegu hlutverki og að afnám hennar myndi stefna matarhefðum landsins í hættu. Slóvenar krefjast þess að Evrópusambandið skilgreini pylsuna sem landfræðilega eign þeirra - líkt og gert var með Champagne í Frakklandi og Parmesan ost á Ítalíu. „Rökfærslur okkar eru gildar," sagði umhverfis- og landbúnaðarráðherra Slóveníu, Franc Bogovic. „Við vonumst til þess að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins viðurkenni rétt okkar varðandi Kranjska-pylsuna." Takist löndunum ekki að komast að niðurstöðu mun framkvæmdastjórn Evrópusambandsins neyðast til að skera úr um hver sér réttbær eigandi „Krainer/Kransjka-pylsunnar."
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira