Mögulegt að Pearce velji EM-hóp Englands Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. apríl 2012 17:00 Stuart Pearce. Nordic Photos / Getty Images
Enn hefur nýr landsliðsþjálfari Englands ekki verið ráðinn og því er mögulegt að Stuart Pearce muni velja landsliðshópinn sem fer á EM í sumar nú í byrjun næsta mánaðar. Pearce þjálfar U-21 landslið Englands og mun einnig stýra knattspyrnuliði Breta á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sumar. Hann sagði í viðtali við breska fjölmiðla í dag að hann muni líklega velja EM-hópinn þann 10. maí eða svo ef ekki verður búið að ráða landsliðsþjálfara þá. Þó er enn mögulegt að landsliðsþjálfari verði ekki ráðinn fyrr en í lok maímánaðar en mótið í Póllandi og Úkraínu hefst þann 8. júní. „Ég er alveg til í að taka bæði mótin [EM og Ólympíuleikana] í sumar. Það væri frábær reynsla fyrir mig," sagði Pearce. „En hvort sem að ég muni fara á EM í sumar eða einhver annar er búið að skipuleggja liðið og allan undirbúning í þaula." „Hver sem tekur við verður örugglega ánægður með þá vinnu sem er búið að vinna af hendi, bæði af Fabio Capello og mér sjálfum. Það er ekkert því til fyrirstöðu að nýr þjálfari takið við starfinu á morgun og taki upp þráðinn þá." Fabio Capello hætti sem landsliðsþjálfari Englands í febrúar og Pearce stýrði landsliðinu í vináttulandsleik gegn Hollandi sem tapaðist, 3-2. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur helst verið orðaður við starfið en þó er ekki talið líklegt að hann taki við því fyrr en að tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lýkur.
Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Sjá meira