Erlent

Mannréttindafrömuðir fagna dóminum yfir Taylor

Mannréttindafrömuðir víða um heiminn hafa fagnað dóminum yfir Charles Taylor fyrrum leiðtoga Líberíu.

Sérstakur alþjóðadómstóll í Haag taldi Taylor sekan í 11 liðum um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu í aðstoð sinni við uppreisnarmenn í Sierra Leone árin 1991 til 2002. Refsingin verður ákveðin í næsta mánuði.

Elise Keppler talsmaður samtakanna Human Rights Watch segir að dómurinn sé ákaflega mikilvægur, ekki bara fyrir fórnarlömb stríðsins í Sierra Leone heldur einnig fyrir alþjóðlegt réttlæti í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×