Karzai segir upplýsingaöflun hafa brugðist í aðdraganda árásar 16. apríl 2012 23:48 Hamid Karzai ásamt Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins
Talið er að hryðjuverkasamtökin Haqqani hafi staðið að baki árásum á opinberar byggingar og stofnanir í Kabúl, höfuðborg Afganistan, á sunnudaginn. Forseti landsins segir að brestur í upplýsingaöflun NATO hafi leitt til árásanna. Árásin stóð yfir í tæpar 18 klukkustundir. Vígamennirnir samhæfðu árásir sínar en þær áttu sér stað víðsvegar um landið - þó aðallega í Kabúl þar sem fjöldi opinberra bygginga urðu fyrir árásum, þar á meðal voru sendiráð Bandaríkjanna, Þýskalands og Bretlands sem og höfuðstöðvar NATO í Kabúl. Talið er að 51 hafi látist í árásunum - flestir þeirra í Kabúl. Hamid Karzai, forseti Afganistan, sagði í dag að árásirnar hafi verið tengdar brestum í upplýsingaöflun, bæði hjá afganska hernum sem og NATO. Karzai tjáði sig í fyrsta sinn um árásirnar í dag. Hann hóf ávarp sitt á því að lofa öryggissveitum afganska hersins. Hann sagði að hermennirnir hefðu sannað ágæti sitt og að þeir væru vel færir um að vernda landið. „Við brugðumst í upplýsingaöflun okkar og njósnum," sagði Karzai. „En hið sama má segja um NATO. Þetta verður að rannsaka." Þrír vígamenn voru handsamaðir í kjölfar árásanna. Samkvæmt yfirvöldum í Afganistan hafa þeir játað stuðning við Haqqani hryðjuverkasamtökin en þau er talin tengjast al-Qaeda.
Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Pútín sló öll met Erlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Innlent Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Erlent Fleiri fréttir Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Sjá meira