Pétur Tyrfingsson heiðursfélagi Blúsfélagsins 31. mars 2012 17:28 Pétur Tyrfingsson, lengst til hægri, fer hamförum í blúsinum.
Heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur árið 2012 er Pétur Tyrfingsson. Útnefning heiðursfélagans var kynnt við setningarathöfn Blúshátíðar sem fram fór í Kolaportinu í dag, laugardaginn 31. mars samkvæmt tilkynningu frá blúsurunum. Pétur Tyrfingsson er vel að heiðrinum kominn en fáir hafa verið jafn ötulir og hann við að kynna og stuðla að uppgangi blústónlistarinnar á Íslandi. Í sex ár hélt Pétur úti vikulegum útvarpsþáttum um blús og eftir hann liggur fjöldi blaðagreina um sögu blústónlistarinnar, tónlistarmenn og fleira sem viðkemur tónlistarstefnunni. Tregasveitin, hin goðsagnakennda hljómsveit Péturs, var mjög áberandi í blúslífi landsmanna fyrr á árum. Þar vakti Guðmundur, sonur Péturs, fyrst athygli en Guðmundur Pétursson varð heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur á síðasta ári. Það er mikill heiður fyrir Blúshátíð í Reykjavík að kynna endurkomu Tregasveitarinnar á Blúshátíð og það verður forvitnilegt að heyra þá feðga Pétur Tyrfingsson og Guðmund Pétursson spila saman eftir öll þessi ár. Fjöldi viðburða verður í Reykjavík næstu daga á vegum Blúshátíðar sem nær hámarki með þremur stórtónleikum á Hilton Reykjavík Nordica næstkomandi þriðjudags-, miðvikudags-, og fimmtudagskvöld með erlendum og innlendum blústónlistarmönum. Blúsfélag Reykjavíkur var stofnað þann 6 nóvember 2003. Tilgangur félagsins er að auka hróður blússins á Íslandi. Blúsfélagið rekur vefsetrið www.blues.is þar er að finna upplýsingar um allt sem tengist blús á Íslandi.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira