Farið fram á sex ára fangelsi - fórnarlambið minnislaust 7. mars 2012 13:11 Tómas Pálsson Eyþórsson, Axel Már Smith og Kristján Halldór Jensson í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Mynd/Anton
Farið var fram á sex ára fangelsisdóm yfir Kristjáni Halldóri Jenssyni í Héraðsdómi í morgun fyrir tilraun til manndráps þegar hann beitti afsagaðri haglabyssu í átökum í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í nóvember í fyrra. Aðalmeðferð í málinu lauk nú laust fyrir hádegi. Saksóknari kvaðst telja þriggja ára fangelsisdóm hæfilegan fyrir Tómas Pálsson Eyþórsson og Axel Má Smith sem gefið er að sök að hafa tekið þátt í árásinni. Borið hefur verið fyrir dómi að málið eigi sér rætur í deilum við annað fórnarlamb árásarinnar vegna meintra skulda Tómasar við hann. Mennirnir segja ætlan sína hafa verið að hræða fórnarlambið, ekki vinna honum mein. Fórnarlambið var fært fyrir dóm í morgun eftir að hafa skrópað í gær. Fyrir dóm bar viðkomandi svo við algjöru minnisleysi um nær alla þætti málsins, þar á meðal um skýrslugjöf sína hjá lögreglu strax eftir árásina, en henni lauk þegar seinna skotið hæfði bíl fórnarlambsins eftir eltingarleik um bæinn. Þegar dómari átaldi manninn vegna meints minnisleysis spurði hann á móti hvort að dómari hefði lent í því að skotið hafi verið á hann. Maðurinn kvað áfallið vegna árásarinnar hafa haft áhrif á minni hans, en þegar hann var spurður hvort kæran sem hann lagði fram hjá lögreglu væri röng, svaraði hann ekki öðru en að hann hefði ekki fyrir sið að ljúga. Í fyrradag bar réttargæslumaður fórnarlambs árásarinnar fyrir dómi að hann hefði fallið frá öllum skaðabótakröfum í málinu og það staðfesti hann fyrir dómi í gær. Ekki liggja fyrir skýringar á þeim sinnaskiptum. Hinn maðurinn sem var í bílnum sem skotið var á gerir 1,2 milljóna króna skaðabótakröfu vegna árásarinnar. Verjendur mannanna þriggja hafa allir krafist sýknu vegna manndrápsákærunnar. Telja þeir í mesta lagi hægt að heimfæra ákærur upp á ákvæði laga um að hafa skapað öðrum hættu.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Fleiri fréttir „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“