Innlent

Skúli hafði rætt við árásarmanninn í klukkustund

Skúli Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoðar sem nú liggur á gjörgæsludeild með lífshættuleg stungusár, hafði rætt við árásarmann sinn í um klukkutíma áður en maðurinn, Guðgeir Guðmundsson, lét til skarar skríða.

Heimildir fréttastofu herma að umkvörtunarefni Guðgeirs hafi snúist um skuld sem í upphafi hafi verið ellefu þúsund krónur vegna brunatryggingar. Skuldin hafi verið komin í um áttatíu þúsund krónur og hafði Skúli boðist til að lækka hana í fimmtíu þúsund. Skömmu síðar stakk Guðgeir Skúla ítrekað.

Skúli gekkst undir aðgerð á mánudag. Honum er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×