700 fyrirtæki tengjast áliðnaði á Íslandi 7. mars 2012 18:45 Álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð.
Álverin standa undir níutíu milljörðum króna af landsframleiðslu Íslendinga, að mati Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Ragnar Árnason prófessor segir koma á óvart hversu stórt framlag tengdra greina áliðnaðarins er. Þrjú álver eru rekin á Íslandi og hjá þeim starfa um tvöþúsund manns en þegar bætt er við þeim sem tengjast álverunum teljast nærri fimm þúsund manns starfa í áliðnaði og tengdum greinum. Þetta kemur fram í skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir Samtök álframleiðenda. Meginniðurstaðan er að framlag áliðnaðar, beint og óbeint, nemi 85-96 milljörðum króna og sé á bilinu sex til sjö prósent af landsframleiðslu. Ragnar Árnason prófessor segir að komið hafi á óvart hversu stórt framlag tengdra greina reyndist vera, eins og fyrirtækja í flutningum, efnaiðnaði, sérfræðiþjónustu, málmvinnslu og viðgerðarþjónustu. Það hafi reynst miklu meira en menn höfðu áður ímyndað sér. Þarna væri um að ræða allt að 700 fyrirtæki og framlag sem væri upp á 3-4 prósent af landsframleiðslu. En má út frá þessari skýrslu álykta að áliðnaðurinn hafi ekki notið sannmælis í opinberri umræðu? Ragnar segir ekki sitt að meta hvað sé sannmæli eða ekki. Þetta sé hins vegar umdeildur atvinnuvegur og menn hafi velt því fyrir sér hvort yfirleitt hafi borgað sig fyrir Ísland að hafa þennan atvinnuveg. „Ég ætla í sjálfu sér ekki að leggja dóm á það. En ég ætla að vekja athygli á því að þessi atvinnuvegur í dag stendur undir mjög miklu af íslenskri efnahagsstarfsemi. Raunverulega miklu hærra hlutfalli heldur en sem nemur þessu beina og óbeina framlagi. Vegna þess að þetta er grunnatvinnuvegur og á þeim grunni hvílir þjónusta, bæði opinber og einkaþjónusta, af mjög margvíslegu tagi," segir Ragnar.
Mest lesið Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Innlent „Alveg hræðilegt ástand“ Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Innlent Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Erlent Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Innlent Fleiri fréttir Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Sjá meira