Innlent

Dópaðir ökumenn teknir úr umferð á Selfossi

Ung kona var tekin úr umferð á Selfossi í gærkvöldi vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi af því var gerð húsleit heima hjá henni þar sem lítilræði af fíkniefnum fannst.

Ungur karlmaður var tekinn úr umferð fyrir sömu sakir á Selfossi í gærdag, en ekkert fannst við húsleit heima hjá honum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×