Innlent

Páfagaukur í óskilum á lögreglustöð

Ungur páfagaukur, blár, grár og hvítur að lit, líklega svonefndur Gári, er í vörslu lögreglunnar á Akureyri eftir að skólastúlkur gómuðu hann í bókasafni Háskólans þar í bæ í gærkvöldi.

Lögreglumenn útbjuggu búr úr netruslakörfu og hafa gefið honum eitthvað að kroppa, á meðan þess er beðið að eigandinn hafi samband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×