Innlent

Varað við borgarísjökum undan Horni á Ströndum

Tveir stórir borgarísjakar sáust nokkrar sjómílur aust-suðaustur af Horni á Ströndum þegar flugvél Landheglisgæslunnar flaug þar yfir í gær.

Þeir eru á siglingaleið og varar stjórnstöð Gæslunnar sjófarendur við þeim. Þeir eiga þó að sjást vel í ratsjám því sá stærri skagar 60 metra upp úr sjónum og er hundrað metrar í þvermál. Annars er aðal ísröndin um 70 sjómílur norð-norðvestur af Straumsnesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×