Innlent

Mikil hálka í höfuðborginni

Nokkur umferðaróhöpp hafa þegar orðið í kvöld.
Nokkur umferðaróhöpp hafa þegar orðið í kvöld.
Mikil hálka er á vegum höfuðborgarinnar. Lögreglan vill koma þeim skilaboðum til ökumanna að gæta sérstakrar varúðar vegna hálkunnar.

Mjög hált er víðast hvar. Samkvæmt lögreglunni getur reynst erfitt að átta sig á hálkunni í sumum tilvikum. Er því mikilvægt að ökumenn séu á varðbergi.

Nokkur umferðaróhöpp hafa þegar átt sér stað í kvöld. Slys hafa þó ekki orðið á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×