Innlent

Gæsluvarðhald rennur út í dag

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manni, sem veitti starfsmanni lögmannsstofu lífshættulega áverka á mánudagsmorgun rennur út í dag, en sterklega er búist við að lögregla krefjist framlengingar á gæsluvarðhaldinu.

Maðurinn, sem var stunginn, liggur enn mjög þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítalans, þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Árásarmaðurinn hefur játað á sig verknaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×