Eldur í verslunarmiðstöð á Ísafirði á háannatíma 24. janúar 2012 21:11 Myndin er úr safni.
Allt tiltækt lið Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar var kallað út um sexleytið í kvöld þegar eldur kom upp í eldhúsi á veitingastaðarins Thai-Koon í verslunarmiðstöðinni Neista á Ísafirði, þar sem einnig er verslun Samkaupa, póstafgreiðsla og önnur verslun. Það er vefsíða Bæjarins bestu, bb.is, sem greinir frá. Þar segir að húsið hafi verið rýmt og næsta nágrenni lokað, en engan sakaði. Neisti komst að öllum líkindum upp í háf yfir eldavél á veitingastaðnum Thai-Koon. Þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang lagði eld og reyk upp úr þaki hússins og var því ákveðið að rýma svæðið í kring. Eldvarnarkerfi hússins fór í gang og tókst að mestu að slökkva eldinn áður en slökkviliðsmenn komu á vettvang. Að sögn slökkviliðsins á Ísafirði var töluvert af fólki í húsinu, enda háannatími í verslunum og nokkrir gestir á veitingastaðnum. Engum varð meint af en töluverðar skemmdir urðu í eldhúsinu. Unnu slökkviliðsmenn við að reykræsta og hreinsa upp vatn eftir úðara eldvarnarkerfisins.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni Innlent Fleiri fréttir ÖBÍ greiðir málskostnaðartryggingu Jakubs Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Sjá meira