Dæmdur vegna hryðjuverka á Balí 23. júní 2012 06:00 Lögreglumenn leiddu Patek út úr réttarsalnum í Djakarta eftir að dómur féll. FréttablaðiÐ/AP
Umar Patek, 45 ára meðlimur í Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum var á fimmtudag dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að hafa smíðað bílsprengju sem notuð var til að sprengja skemmtistað á indónesísku eyjunni Balí árið 2002. Alls létust 202 í sprengingunni, þar á meðal 88 Ástralar og sjö Bandaríkjamenn. Saksóknarinn í málinu hafði farið fram á lífstíðarfangelsi yfir Patek en hann var ákærður fyrir morð, brot á innflytjendalöggjöf, að hafa haldið hlífiskildi yfir hryðjuverkamönnum og að hafa haft ólögleg vopn undir höndum. Hlaut Patek refsingu vegna árásanna á Balí en einnig fyrir þátttöku í hryðjuverkaárásum sem gerðar voru á kirkjur í Djakarta á aðfangadag árið 2000 og urðu nítján að bana. Patek var handtekinn á síðasta ári í Pakistan, í sama bæ og Osama bin Laden faldi sig í síðustu ár ævi sinnar. Hann hafði þá verið í felum í níu ár en hann var sá síðasti þeirra sem grunaðir voru um þátttöku í hryðjuverkunum sem tekinn var höndum. Í vörn sinni lagði Patek áherslu á að hann hefði ekki leikið stórt hlutverk í smíði sprengjunnar þótt hann hefði vissulega tekið þátt. Þá bað hann fjölskyldur fórnarlambanna sem og stjórnvöld í Indónesíu afsökunar og sagðist hafa verið á móti árásunum. Á hann hefði hins vegar ekki verið hlustað.- mþl
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira