Lítil hetja sigraðist á sjaldgæfu krabbameini Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 22. júlí 2012 20:30
Sigrúnu Láru Kjartansdóttur var vart hugað líf þegar hún greindist með beinkrabbamein einungis fimm mánaða gömul. Í dag er hún tæplega tveggja ára og tókst eftir tíu mánaða meðferð að sigrast á krabbanum. Mamma hennar mun á morgun leggja af stað í göngu til styrktar rannsóknum á þessu meini. Sigrún býr ásamt foreldrum sínum og bróður í London en í mars 2011 greindist hún með mjög sjaldgæft beinakrabbamein. "Henni var eiginlega ekki hugað líf til að byrja með, þetta er mjög erfitt krabbamein og það eru mjög fá börn sem fá þetta krabbamein í hennar aldurshópi, við búum í Englandi og þar eru bara tvö börn á ári sem fá þetta krabbamein" segir Kjartan Sveinsson faðir Sigrúnar. Sigrún fór í gegnum mjög stífa og erfiða lyfjameðferð sem lauk í desember síðastliðnum þar sem meðal annars þurfti að skera úr henni eitt og hálft rifbein. "Þetta tók mjög mikið á líkamann á henni, við þurfum að vera með gúmmíhanska til að skipta um bleyjur, þetta er svo svakalegt efni sem er dælt beint inn í blóðrásina, þannig það tók marga mánuði fyrir hana að jafna sig og hún er ekki alveg komin á strik en hún er að jafna sig núna og henni líður vel" segir Kjartan. Þau segja að mjög litlar rannsóknir hafi verið gerðar um þetta krabbamein vegna þess hversu sjaldgæft það er. "Eiginlega það erfiðasta við þetta er óvissan og það er hluti af því að það er svo rosalega lítið vitað um þennan sjúkdóm fyrir þennan aldurshóp og eiga það yfir höfði sér að dóttir manns geti dáið innan við ár og lifa með því í heilt ár það er rosalega erfitt" segir Kjartan. Þau vildu leggja sitt af mörkum og safna peningum til styrktar rannsóknum á þessu krabbameini með það að markmiði að bæta lífslíkur þeirra barna sem greinast með þetta krabbamein. Á morgun heldur Pheobe af stað í áheitagöngu um Lónsöræfi og síðar á árinu ætlar hún að ganga kínamúrinn og á næsta ári upp á Kilimanjaro. "Mig langar að safna svolítið miklum pening fyrir þessi stofnun, 20 þúsund pund, það er 4 milljónir, kannski get ég safnað meira en þetta er til að byrja með" segir Phoebe Jenkins móðir Sigrúnar. Hægt er að styðja við verkefni hjónanna á heimasíðunni JustGiving en öll framlög renna til The Bone Cancer Research Trust í Bretlandi sem er eina stofnunin þar sem rannsóknir á svona krabbameini fara fram.
Mest lesið Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Fleiri fréttir Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Sjá meira