Innlent

Ólafur Ragnar sterkastur á Suðurlandi

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Hátt í fimmtungs munur var á fylgi Ólafs Ragnars á milli kjördæma. Sterkust var staða hans í Suðurkjördæmi.

Allir forsetaframbjóðendurnir nema Hannes mættu í Útvarpshúsið til að fylgjast með því þegar fyrstu tölur voru birtar. Strax var ljóst að staða Ólafs Ragnars var sterk. Úrslit lágu svo fyrir klukkan hálf átta í morgun. Ólafur er ótvíræður sigurvegari kosninganna en hann hlaut tæp 53% atkvæða á landinu öllu.

Um tuttugu prósentum munaði á honum og Þóru Arnórsdóttur sem kom næst á eftir. Húnfékk um þriðjung atkvæða eða 33%. Þá fékk Ari Trausti Guðmundsson tæp 9% atkvæði, Herdís Þorgeirsdóttir tæp 3%, Andrea Ólafsdóttir tæp 2% og Hannes Bjarnason tæpt 1%.

Heildarkjörsókn á öllu landinu var fremur dræm miðað við síðustu Alþingiskosningar en hún var rúm 69%.

Staða Ólafs var sterkust í Suðurkjördæmi þar sem hann fékk 64% atkvæða en Þóra 24%. Um 17% munað á fylgi hans þar og í Reykjavíkurkjördæmi norður en þar hlaut Ólafur um 46% atkvæða og Þóra 39%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×