Valtýr Sigurðsson: Óvenjuleg og kaldrifjuð árás 8. júní 2012 14:25 Valtýr Sigurðsson aðstoðaði vin sinn Skúla eftir árásina.
Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, sagðist ýmsu vanur þegar hann bar vitni í réttarhöldunum yfir Guðgeiri Guðmundssyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann bætti við að hann hefði þekkt Skúla Eggert Sigurz lengi, en hrottafengin árás Guðgeirs á vinnufélaga Valtýs hefur haft mikil áhrif á hann. Valtýr var einn af þremur vinnufélögum Skúla sem komu inn á skrifstofu hans eftir að Guðgeir hafði stungið hann fimm sinnum, þar af voru fjórar stungu lífshættulegar. Þegar Valtý bar að voru þar fyrir annar lögmaður og svo Guðni Bergs sem lá ofan á Guðgeiri. Valtýr segir að hnífurinn hafi legið á miðju gólfinu, og hafi hann sparkað honum fjær Guðgeiri. Á þessum tímapunkti studdi Skúli sig við skrifborð og blæddi mikið. Valtýr ákvað því að aðstoða Skúla sem muldraði tvívegis að Guðgeir hefði stungið sig. Valtýr lét hann leggjast á gólfið, þar sem hann hélt fótum hans uppi til þess að auka blóðstreymi til höfuðsins. Allan þennan tíma var Skúli með meðvitund. Það var ekki fyrr en hann kom á spítalann sem hann missti meðvitund. Hann var svo í lífshættu næstu þrjár vikurnar. Spurður út í breytta starfshætti á skrifstofunni vegna árásarinnar svararði Valtýr því til að það hefði verið farið yfir allar verklagsreglur eftir atvikið og öryggið hert. „En svo komust við að því að þeirri niðurstöðu að venjulegar varúðarráðstafanir hefðu ekki getað komið í veg fyrir þetta. Árásin var það óvenjuleg og kaldrifjuð," sagði Valtýr að lokum.
Tengdar fréttir Guðgeir vildi að hann hefði eytt meiri tíma í World of Warcraft "Ég íhugaði mikið að fremja sjálfsmorð," sagði Guðgeir Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun Þar sem réttað er yfir honum út af lífshættulegri árás en hann stakk Skúla Eggert Sigurz ítrekað með hnífi þannig að minnstu munaði að Skúli létist af áverkum sínum.m. 8. júní 2012 13:39 Skúli ber vitni gegn árásarmanninum Skúli Sigurz sem hlaut alvarleg sár þegar hann var stunginn á lögmannsstofunni Lagastoð í mars ber vitni gegn árásarmanninum, Guðgeiri Guðmundssyni. Aðalmeðferð í málinu hófst klukkan níu og stendur fram eftir degi. Í ákæru er Guðgeiri gefið að sök tilraun til manndráps með því að stinga Skúla ítrekað. Þá er hann jafnframt sakaður um alvarlega líkamsárás þegar hann stakk Guðna Bergsson lögmann í lærið þegar Guðni hugðist koma Skúla til bjargar. 8. júní 2012 10:18 Skúli Eggert: Fæ ekki martraðir, en hugsa mikið um þetta Skúli Eggert Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoða, var á leiðinni út af lögfræðiskrifstofunni þegar Guðgeir Guðmundsson kom þangað hinn örlagaríka dag sem hann stakk Skúla fimm sinnum með beittum veiðihníf. Þetta kom meðal annars fram í málflutningi Skúla í aðalmeðferð Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. 8. júní 2012 11:26 Segist hata lögfræðinga "Ég hata lögfræðinga," svaraði Guðgeir Guðmundsson þegar Skúli Eggert Sigurz spurði hvað gengi að honum á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum. Þá hafði Guðgeir stungið Skúla að minnsta kosti einu sinni í snarpri en gríðarlega ofbeldisfullri árás. 8. júní 2012 10:48 Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira
Guðgeir vildi að hann hefði eytt meiri tíma í World of Warcraft "Ég íhugaði mikið að fremja sjálfsmorð," sagði Guðgeir Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun Þar sem réttað er yfir honum út af lífshættulegri árás en hann stakk Skúla Eggert Sigurz ítrekað með hnífi þannig að minnstu munaði að Skúli létist af áverkum sínum.m. 8. júní 2012 13:39
Skúli ber vitni gegn árásarmanninum Skúli Sigurz sem hlaut alvarleg sár þegar hann var stunginn á lögmannsstofunni Lagastoð í mars ber vitni gegn árásarmanninum, Guðgeiri Guðmundssyni. Aðalmeðferð í málinu hófst klukkan níu og stendur fram eftir degi. Í ákæru er Guðgeiri gefið að sök tilraun til manndráps með því að stinga Skúla ítrekað. Þá er hann jafnframt sakaður um alvarlega líkamsárás þegar hann stakk Guðna Bergsson lögmann í lærið þegar Guðni hugðist koma Skúla til bjargar. 8. júní 2012 10:18
Skúli Eggert: Fæ ekki martraðir, en hugsa mikið um þetta Skúli Eggert Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoða, var á leiðinni út af lögfræðiskrifstofunni þegar Guðgeir Guðmundsson kom þangað hinn örlagaríka dag sem hann stakk Skúla fimm sinnum með beittum veiðihníf. Þetta kom meðal annars fram í málflutningi Skúla í aðalmeðferð Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. 8. júní 2012 11:26
Segist hata lögfræðinga "Ég hata lögfræðinga," svaraði Guðgeir Guðmundsson þegar Skúli Eggert Sigurz spurði hvað gengi að honum á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum. Þá hafði Guðgeir stungið Skúla að minnsta kosti einu sinni í snarpri en gríðarlega ofbeldisfullri árás. 8. júní 2012 10:48