Grunaðir barnaníðingar ganga nú lausir 14. apríl 2011 12:23 Rannsókn málsins er enn í fullum gangi þó mönnumum hafi verið sleppt úr varðhaldi Mynd úr safni
Mönnunum tveimur sem sátu í gæsluvarðhaldi, grunaðir um að hafa beitt sjö ára dreng kynferðislegu ofbeldi, eru lausir úr haldi. Lögreglan sleppti þeim seinni part gærdags og eru þeir því frjálsir ferða sinna. Ekki var talin ástæða til að fara fram á framlengingu á varðhaldi sem raunar var í gildi til dagsins í dag, hvorki á grundvelli rannsóknarhagsmuna né almannahagsmuna. Lögreglan hefur meðal annars farið yfir tölvur mannanna og tölvugögn. Grunur lék á að þar væri myndefni með barnaníð að finna en svo var ekki. „Leitin leiddi ekki í ljós neitt efni sem innihélt barnaníð," segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn málsins er þó enn í fullum gangi og lögreglan heldur áfram að vinna úr þeim gögnum og upplýsingum sem liggja fyrir. Umræddir menn eru faðir og frændi drengsins sem þeir eru grunaðir um að hafa misnotað. Faðir drengsins á að bak langan sakaferil og hefur meðal annars hlotið dóm fyrir árás á móður drengsins. Þegar mennirnir voru hnepptir í gæsluvarðhald flúði móðirin af heimili sínu ásamt barnsföður sínum, börnum og syninum.
Tengdar fréttir Pabbinn og frændinn yfirheyrðir í allan dag Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi, grunaðir um að hafa beitt 7 ára dreng grófu kynferðislegu ofbeldi, verða yfirheyrðir í allan dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er búist við að yfirheyrslur standi fram á kvöld. Mennirnir sem um ræðir eru faðir drengsins og frændi hans. Tekin verður ákvörðun um það í fyrramálið hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum. Varðhaldið rennur út á morgun, en ekki í dag eins og greint var frá í Fréttablaðinu. Faðir drengsins á að bak langan sakaferil og hefur meðal annars hlotið dóm fyrir árás á móður drengsins. Móðirin sagði í samtali við fréttastofu í gær að hún óttaðist mjög mennina tvo. Vegna þessa hefur hún flúið heimili sitt, ásamt drengnum, eiginmanni sínum og börnum þeirra. Meðal þess sem lögreglan rannsakar nú eru tölvugögn sem lagt var hald á við húsleit hjá mönnunum þann 31. mars, en grunur leikur á að mennirnir hafi myndað ofbeldið sem þeir beittu drenginn. 6. apríl 2011 11:26 Sat inni fyrir árás á móðurina og afann Karlmaður um fimmtugt sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa beitt son sinn á áttunda ári grófri kynferðislegri misnotkun, á að baki langan sakaferil og hefur meðal annars verið dæmdur fyrir ofbeldisbrot. Frændi föðurins sætir einnig gæsluvarðhaldi, grunaður um sömu brot. 6. apríl 2011 07:00 Faðir og frændi neita báðir sök Mennirnir tveir, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart dreng á áttunda ári sættu yfirheyrslum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í allan gærdag. Þeir neita báðir sök í málinu. 7. apríl 2011 08:00 Ákvörðun um gæsluvarðhald yfir grunuðum níðingum tekin á morgun Ákvörðun um að óska eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir mönnunum tveimur sem grunaðir eru um að hafa beitt átta ára gamlan son annars þeirra grófu kynferðislegu ofbeldi verður tekin á morgun. 5. apríl 2011 15:48 Taldir hafa misnotað lítinn dreng gróflega Tveir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi, grunaðir um kynferðislega misnotkun á ungum dreng. Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður ofbeldisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 5. apríl 2011 07:00 Pabbinn og frændinn áfram í gæsluvarðhaldi Mennirnir tveir, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart dreng á áttunda ári voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. apríl að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 7. apríl 2011 17:57 Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Erlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Sjá meira
Pabbinn og frændinn yfirheyrðir í allan dag Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi, grunaðir um að hafa beitt 7 ára dreng grófu kynferðislegu ofbeldi, verða yfirheyrðir í allan dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er búist við að yfirheyrslur standi fram á kvöld. Mennirnir sem um ræðir eru faðir drengsins og frændi hans. Tekin verður ákvörðun um það í fyrramálið hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum. Varðhaldið rennur út á morgun, en ekki í dag eins og greint var frá í Fréttablaðinu. Faðir drengsins á að bak langan sakaferil og hefur meðal annars hlotið dóm fyrir árás á móður drengsins. Móðirin sagði í samtali við fréttastofu í gær að hún óttaðist mjög mennina tvo. Vegna þessa hefur hún flúið heimili sitt, ásamt drengnum, eiginmanni sínum og börnum þeirra. Meðal þess sem lögreglan rannsakar nú eru tölvugögn sem lagt var hald á við húsleit hjá mönnunum þann 31. mars, en grunur leikur á að mennirnir hafi myndað ofbeldið sem þeir beittu drenginn. 6. apríl 2011 11:26
Sat inni fyrir árás á móðurina og afann Karlmaður um fimmtugt sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa beitt son sinn á áttunda ári grófri kynferðislegri misnotkun, á að baki langan sakaferil og hefur meðal annars verið dæmdur fyrir ofbeldisbrot. Frændi föðurins sætir einnig gæsluvarðhaldi, grunaður um sömu brot. 6. apríl 2011 07:00
Faðir og frændi neita báðir sök Mennirnir tveir, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart dreng á áttunda ári sættu yfirheyrslum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í allan gærdag. Þeir neita báðir sök í málinu. 7. apríl 2011 08:00
Ákvörðun um gæsluvarðhald yfir grunuðum níðingum tekin á morgun Ákvörðun um að óska eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir mönnunum tveimur sem grunaðir eru um að hafa beitt átta ára gamlan son annars þeirra grófu kynferðislegu ofbeldi verður tekin á morgun. 5. apríl 2011 15:48
Taldir hafa misnotað lítinn dreng gróflega Tveir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi, grunaðir um kynferðislega misnotkun á ungum dreng. Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður ofbeldisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 5. apríl 2011 07:00
Pabbinn og frændinn áfram í gæsluvarðhaldi Mennirnir tveir, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart dreng á áttunda ári voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. apríl að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 7. apríl 2011 17:57