Taldir hafa misnotað lítinn dreng gróflega 5. apríl 2011 07:00
Tveir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi, grunaðir um kynferðislega misnotkun á ungum dreng. Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður ofbeldisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig um efnisatriði málsins þegar eftir því var leitað að öðru leyti en því að mennirnir hefðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 6. apríl næstkomandi. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst barst málið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá Barnaverndarnefnd Kópavogs. Mennirnir, sem eru á fertugsaldri og um fimmtugt, voru handteknir síðastliðinn fimmtudag. Húsleitir voru gerðar heima hjá þeim báðum að fengnum úrskurði dómara. Á báðum heimilunum fundust fíkniefni, bæði maríjúana og hvítt efni sem talið er vera kókaín. Þá var lagt hald á tölvur beggja mannanna vegna gruns um að í þeim sé að finna myndir sem sýna börn, þar á meðal unga drenginn, á klámfenginn og kynferðislegan hátt. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald skömmu eftir að þeir voru handteknir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leikur grunur á að drengurinn, sem er átta ára gamall, hafi sætt kynferðislegri misnotkun af hálfu mannanna í einhvern tíma og að brotin hafi verið mjög gróf. Annar mannanna, sá um fimmtugt, er faðir drengsins en hinn maðurinn er vinur föðurins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.- jss
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira