Landspítalinn lánar Garðabæ Vífilsstaði 22. nóvember 2011 06:30 Holtsbúð stendur nú auð en Garðbæingar greiða enn leigu af húsinu og munu gera fram á árið 2013.Fréttablaðið/vilhelm
Allir 39 íbúar hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar í Garðabæ voru fluttir á Vífilsstaðaspítala laugardaginn 12. nóvember vegna ófullnægjandi aðbúnaðar. Húsið stendur nú autt. Heimilisfólk Holtsbúðar, allt eldra fólk, býr flest hvert við mikil veikindi. Um miðjan september var Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldrunar af Landakoti, fenginn inn í Holtsbúð til afleysinga. Innan fárra daga hafði hann áttað sig á því að Holtsbúð væri barn síns tíma og þar væri erfitt að annast jafnmikið veikt fólk og þar dvaldi. „Það var sett upp af góðum hug á sínum tíma en var orðið algjörlega ófullnægjandi húsnæði og átti sinn þátt í því að skerða gæði þjónustunnar,“ segir Pálmi. „Mér fannst of langt að bíða eftir nýju hjúkrunarheimili sem er í byggingu. Það tekur eitt og hálft ár að byggja það en meðalævi fólks sem dvelur á svona hjúkrunarheimili er þrjú ár. Stór hluti þess hefði þess vegna aldrei fengið að njóta nýja heimilisins,“ segir hann. Forstjóri Holtsbúðar hafði áður látið sér detta í hug að flytja starfsemina að Vífilsstöðum og Pálmi ákvað að ganga í málið, fá vilyrði frá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans sem á Vífilsstaði, og viðra hugmyndina í kjölfarið við bæjaryfirvöld. Í þetta var vel tekið og innan tveggja mánaða var fólkið flutt. Björn Zoëga segir að gerður hafi verið samningur við Garðabæ um afnot af Vífilsstöðum í eitt og hálft ár. Engin leiga verði greidd, en Garðabær þurfi þó að standa straum af öllum rekstrarkostnaði, til dæmis rafmagni og hita. Garðabær hefur samning um leigu húsnæðisins að Holtsbúð fram til ársins 2013, sem bærinn mun greiða áfram þó að húsið standi autt. Spurður hve há leigan sé segist Erling Ásgeirsson, stjórnarformaður Holtsbúðar, ekki muna það. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að hún sé 20,8 milljónir á ári, og segir Erling það vel geta staðist.stigur@frettabladid.is sunna@frettabladid.is
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira