Handtökuskipun gefin út á Gaddafí 28. júní 2011 00:00 Gaddafí er gefið að sök að hafa fyrirskipað morð, árásir og ólögmætar handtökur á almennum borgurum.Fréttablaðið/AP
Dómarar við Alþjóðadómstólinn í Haag gáfu í gær út handtökuskipun á hendur Múammar Gaddafí, leiðtoga Líbíu. Honum er gefið að sök að hafa fyrirskipað morð á almennum borgurum. Alþjóðadómstóllinn segir Gaddafí, son hans Seif al-Islam og yfirmann líbísku leyniþjónustunnar, Abdullah al-Sanoussi, hafa staðið fyrir morðum, árásum og ólögmætum handtökum á hundruðum almennra borgara á fyrstu dögum uppreisnarinnar gegn stjórn Gaddafís. Þá eru þeir einnig sagðir hafa gert tilraunir til að dylja meinta glæpi sína. Ráðamenn í Líbíu voru ekki lengi að hafna lögsögu Alþjóðadómstólsins. Þeir ásökuðu hann um að ráðast með ósanngjörnum hætti að Afríkubúum en skeyta engu um þá glæpi sem NATO fremji daglega í Afganistan, Írak og nú Líbíu. Anders Fogh Rasmussen, aðalritari NATO, sagði ákvörðun dómstólsins endurspegla einangrun líbískra stjórnvalda. „Verkefni NATO í Líbíu er að vernda almenning í landinu fyrir hersveitum Gaddafís,“ sagði Rasmussen og bætti við að Gaddafí og hersveitir hans yrðu að átta sig á því að tími þeirra væri óðfluga að renna út. Orrustuþotur á vegum NATO hafa síðustu 100 daga gert loftárásir á hernaðarskotmörk í Líbíu. Aðgerðunum hefur hins vegar ekki tekist að veikja stöðu Gaddafís sem leiðtoga landsins að ráði og hafa þær sætt sívaxandi gagnrýni á alþjóðlegum vettvangi á síðustu vikum.- mþl
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Sjá meira