Erlent

Obama hughreysti Löru Logan

Lara Logan
Lara Logan

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hringdi í gær í fréttakonuna Löru Logan og hughreysti hana samkvæmt bandarískum fjölmiðlum, en hún lenti í kynferðislegri árás á Frelsistorginu í Egyptalandi, þar sem hún var að taka upp fréttir fyrir ABC fréttastöðina í mótmælunum í síðustu viku.

Ekki er vitað hvað fór þeirra á milli en forsetinn hefur hvatt egypsk yfirvöld um að finna ofbeldismennina og draga þá fyrir dómstóla. Fréttakonan hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×