Hvað kostar að þrífa glerhjúpinn á Hörpu? Erla Hlynsdóttir skrifar 16. febrúar 2011 10:34 Mörður Árnason hefur lagt fram ítarlega fyrirspurn um Hörpu til ráðherra
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, vill fá að vita hver er áætlaður árlegur kostnaður við þrif á glerhjúpnum sem umlykur tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu. Mörður hefur sömuleiðis óskað eftir skriflegu svari frá mennta- og menningarmálaráðherra um ástæðu þess að átta félög koma að byggingu tónlistarhússins. „Af hverju nægir ekki eitt félag?" spyr Mörður. Þau félög sem um ræðir eru Austurhöfn-TR, Portus, Ago, Situs, Totus, Hospes, Custos og Hringur. Mörður vill líka fá að vita hverjir sátu í stjórnum þessara félaga árin 2009 og 2010, og hvað þeir fengu í þóknum fyrir stjórnarsetu þessi ár, alls, hver og einn, og samtals í hverju félagi fyrir sig. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrirspurn sem Mörður lagði fram á Alþingi í gær og óskar skriflegs svars við.Tölvugerð mynd af glerhjúpnum á HörpunniMynd: Harpa.isFyrirspurnin er í fjórtán liðum, en í heild sinni er hún svohljóðandi:Hvert er starfssvið félaga sem heita Austurhöfn-TR, Portus, Ago, Situs, Totus, Hospes, Custos og Hringur? Hverjir eru eigendur þeirra? Hver er fjöldi starfsmanna hjá hverju þessara félaga og hver var velta félaganna árin 2009 og 2010? Af hverju nægir ekki eitt félag?Hverjir sátu í stjórnum fyrrgreindra félaga árin 2009 og 2010? Hvað fengu þeir í þóknun fyrir stjórnarsetu þessi ár, alls, hver og einn, og samtals í hverju félagi fyrir sig?Hver er nú opinber kostnaðaráætlun Hörpu fullbyggðrar? Hver var upphafleg kostnaðaráætlun?Hvernig er Hörpuframkvæmdin fjármögnuð? Hvaða lán hafa fyrrnefnd félög, Reykjavíkurborg og ríkissjóður tekið vegna byggingarinnar, og með hvaða kjörum?Hver er áætlaður styrkur ríkis og borgar til framkvæmdarinnar? Hvað verður hann reiddur fram á mörgum árum?Hver er viðbótarkostnaður vegna breytinga árið 2010 á fyrri hönnun innanhúss (Ago)?Hver er lóðarkostnaður, framkvæmdakostnaður í umhverfi hússins, kostnaður við gatnagerð og kostnaður við bílahús?Hver er heildarkostnaður við glerhjúpinn og undirstöður hans? Hver er þar af hönnunar- og verkfræðikostnaður við hjúpinn?Hver ber kostnað við tjón á suðurhluta hjúpsins? Hvernig skiptist hann milli aðila?Hver er áætlaður kostnaður við árleg þrif á glerhjúpnum (saltstorka, ryk og önnur óhreinindi)?Hver annast kostnaðareftirlit með Hörpuframkvæmdinni? Liggja fyrir upplýsingar þaðan um einstaka verkþætti?Hvað hafa margir starfsmenn unnið að Hörpu (í mannárum) og hvernig skiptast störfin milli starfsmanna á Íslandi og starfsmanna erlendis eða aðkominna?Hvar liggja frammi teikningar að Hörpu (aðal- og séruppdrættir)? Af hverju hafa ekki allir uppdrættir legið frammi hjá byggingarfulltrúanum í Reykjavík?Hver eru fyrirhuguð verklok við hvern verkþátt framkvæmdarinnar? Hvernig hafa upphafsáætlanir um framkvæmdahraða staðist?
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira