Bólusetja börn sem eiga mest á hættu að sýkjast 30. júlí 2011 18:37
Flóttamenn streyma nú til Kenýu frá þurrkasvæðum í Sómalíu, en hjálparstarfsmenn eiga fullt í fangi með að bólusetja flóttamennina til að koma í veg fyrir faraldur. Miklir þurrkar geisa í Sómalíu, en þar hefur hungursneyð lagst ofan á átök stjórnarliða og uppreisnarmanna sem þjakað hafa þjóðina um áralangt skeið. Fjöldi fólks hefur flúið heimkynni sín í landinu, en margir flóttamenn leggja leið sína yfir landamærin til Kenýu í suðri. Þar hefur landamæravarsla verið hert til muna, en skammt frá landamærunum hefur barnahjálp Sameinuðu þjóðanna komið upp neyðarstöðvum. Þar er börnunum veitt aðhlynning og þau bólusett til að koma í veg fyrir að sjúkdómafaraldrar blossi upp í flóttamannabúðum. „Það sem við gerum hérna er að bólusetja við mislingum og lömunarveiki, gefum A-vítamín og ormahreinsum. Við gerum þetta til að hjálpa börnunum sem koma hingað. Við verðum að tryggja að börnin í Kenía séu varin. Þess vegna erum við með þessa herferð," segir Jane Kariuki, fulltrúi UNICEF í Kenýu. Bólusetningarherferðin stendur yfir í tvær vikur, en hjálparstarfsmenn hafa einkum áhyggjur af lömunarveiki, sem einkum leggst á ung börn og getur reynst banvænn sjúkdómur. „Við bólusetjum börn sem eru innan við fimm ára. Það eru þau börn sem eiga mest á hættu að sýkjast. Þetta hefur verið mjög árangursrík herferð, aðsóknin hefur vreið góð og við vonsumst til að ná til 95% barnanna," segir Jane.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Fleiri fréttir Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Sjá meira