Sakfelldir fyrir að dæla eitri í Amazon 15. febrúar 2011 05:30 Mynd/AP
Dómstólar í Ekvador hafa dæmt bandaríska olíurisann Chevron til greiðslu gríðarlegra skaðabóta fyrir að menga stóran hluta Amazon-skóganna í landinu. Olíufélagið unir ekki niðurstöðunni og ætlar að áfrýja dómnum en dómsmálið hefur veltst um í dómskerfinu í nær tvo áratugi. Ljúki málinu á þeim nótum sem dómur féll í gær þarf Chevron að greiða átta milljarða Bandaríkjadala, eða tæplega þúsund milljarða íslenskra króna. Málið má rekja til olíufélagsins Texaco, sem sameinaðist Chevron árið 2001, sem var kært fyrir að hafa losað milljónir lítra af eiturefnum í pytti og ár í Amazon-skóginum. Fullyrt er að uppskera yfir þrjátíu þúsund Ekvadora hafi eyðilagst, búpeningur hafi drepist vegna mengunar og eins hafi tíðni krabbameins margfaldast vegna mengunarinnar. Fullyrt er að mengun frá eiturefnaúrgangi fyrirtækisins hafi gott sem eyðilagt stór landsvæði. Náttúruverndarsinnar vona að málið sé fordæmisgefandi og neyði fyrirtæki í þróunarríkjum til að uppfylla sömu kröfur til umhverfismála og á vesturlöndum. Í tilkynningu frá Chevron er því haldið fram að allur málareksturinn hafi verið ólöglegur og vitnisburður sérfræðinga hafi allur verið undir áhrifum þeirra sem kærðu fyrirtækið í upphafi. - shá
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Fleiri fréttir Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Sjá meira